Hrossaræktarfélag Suður Þingeyinga verður með stóðhestinn Glitni frá Eikarbrekku í hólfi eftir landsmót. Glitnir er undan Álfasteini frá Selfossi og Brá frá Auðsholtshjáleigu sem er alsystir Gára frá Auðsholtshjáleigu. Glitnir var sýndur í fyrstu verðlaun fjögurra vetra gamall en hlaut sinn hæsta kynbótadóm á Landsmótinu sl. sumar 8,35 þá fimm vetra, sýndur af Jakobi Sigurðssyni. Folatollurinn undir Glitni kostar 80.000 kr með öllu og hægt er að panta undir hann hjá Einari Víði Einarssyni í síma 869 3248
Our goal is that Glitnir is going to Landsmót in Reykjavík . After landsmót he will go to the north to serve mares.
The breeding club in Suður Þingeyjasýsla will have Glitnir frá Eikarbrekku after landsmót.
Price 80.000 ISK total with all included.
To bookfor your mare please contact Einar Víðir Einarsson in ph.869 3248